Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Líflegur Rauða kross markaður á Thorsplani 10.06.2010
Líf og fjör var á markaði sem félagar í Takti héldu í tilefni af bæjarhátíðinni Björtum dögum.

Þátttakendur í verkefninu Taktur héldu líflegan Rauða kross markað á dögunum. Unga fólkið sá um að velja vörur, setja þær upp og annast söluna. Markaðurinn var fjáröflun til styrktar Rauða kross starfs í Malaví.

Markaðurinn var haldinn í 50 fermetra tjaldi á Thorsplani fyrir utan Rauða kross deildina í Hafnarfirði. Selt var ýmiss konar handverk frá Malaví eins og skálar, salatáhöld, skartgripir og myndir. Einnig var mjög fjölbreyttur fatamarkaður með fötum fyrir alla, bæði unga sem aldna og var úrvalið það mikið að það fyllti allt tjaldið.

Markaðurinn var haldinn í tengslum við Bjarta daga í Hafnarfirði og var opinn frá 17:00 til 22:00. Þó svo vindasamt hafi verið í veðri létu gestir og gangandi það ekki á sig fá og voru glaðir og tilbúnir að styrkja gott málefni. Heitt var á könnunni og höfðu sjálfboðaliðar tekið sig til við að útbúa hrískökur sem seldar voru. Alls söfnuðust 69.310 kr. og mun ágóði markaðarins renna til vinadeildar Hafnarfjarðardeildar Rauða krossins í Malaví.

Við þökkum þeim sem lögðu leið sína á markaðinn kærlega fyrir komuna og hver veit nema að búast megi við fleiri slíkum uppákomum í miðbæ Hafnarfjarðar á góðviðrisdögum í sumar.

Þeir sem vilja fræðast frekar um Takt, sem er hluti af verkefninu ungt fólk til athafna geta haft samband við Pál Daníelsson í síma 565-1222 eða með tölvupósti á palli@redcross.is

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook