Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Tyrkneski Rauði hálfmáninn og Magen David Adom í samvinnu vegna Gaza 08.06.2010

Rauði hálfmáninn í Tyrklandi og Magen David Adom (Rauða Davíðstjarnan) í Ísrael sýndu grundvallarmarkmið Rauða kross hreyfingarinnar í verki með samvinnu sinnu við heimflutning tyrkneskra aðgerðarsinna. Tuttuguogþrír Tyrkir særðust í árás Ísraelshers í lok maí á skipalest sem var á leið með hjálpargögn til Gaza.

„Þetta var flókið ferli sem margir komu að, og mörg vandamál sem þurfti að leysa,” útskýrir Ali Akgul, sem stýrði aðgerðum tyrkneska Rauða hálfmánans í Ísrael. „En með samvinnunni við Magen David Adom fundum við leiðir til að flytja hina særðu heim til Tyrklands. Þetta tókst einungis af því að fullt traust ríkti milli systurfélaganna, og þetta sýnir hvernig grundvallarmarkmið Rauða krosshreyfingarinnar virka í reynd, sérstaklega markmiðin um mannúð, hlutleysi og óhlutdrægni.”

Formaður Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans, Tadateru Konoé og framkvæmdastjóri samtakanna Bekele Geleta sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna árásarinnar á skipalestina sem lesa má hér.
 

 

 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook