Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Félagsvinum atvinnuleitenda boðið í leikhús 27.05.2010
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Félagsvinum er boðið í leikhús. Hér eru þeir á sýningunni Eilíf óhamingja í Borgarleikhúsinu.

Leikfélag Akureyrar bauð sjálfboðaliðum Félagsvina atvinnuleitenda á gamanleikinn 39 þrep seinasta föstudagskvöld í Íslensku óperunni. Hópurinn var einstaklega ánægður með að fá boðið og var sammála um að sýningin væri einstaklega vel útfærð og hin mesta skemmtun. Hverju smáatriði var gerð vel skil á sprenghlægilegan máta með fjórum leikurum í fararbroddi sem léku hvorki meira né minna en 139 hlutverk á 100 mínútum - ótrúlegur kraftur!

Í þessu ærslafulla leikriti segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar, en sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur. Söguhetjan Hannay er meðal fyrstu hefðarmanna-hetjanna í bókmennta- og kvikmyndasögunni, og má segja að hann hafi, ásamt Sherlock Holmes, rutt brautina fyrir seinni tíma hetjur á borð við James Bond.

39 þrep, eða The 39 Steps, byggir á skáldsögu John Buchan og samnefndri kvikmynd Alfred Hitchcock. Leikgerðina skrifar Patrick Barlow og byggir á hugmynd Simon Corble og Nobby Dimon.

Sjálfboðaliðar Félagsvina atvinnuleitenda þakka Leikfélagi Akureyrar kærlega fyrir boðið og frábæra sýningu.
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook