 |
| Jón Sigurðsson prjónar fyrir Rauða krossinn. |
Vistmenn af sjúkradeild HSA hafa gengið kröftuglega til liðs við verkefni Héraðs- og Borgarfjarðardeildar Rauða krossins með því að prjóna teppi. Teppin fara í verkefni deildarinnar sem kallast Föt sem framlag þar sem útbúnir eru fatapakkar til neyðaraðstoðar erlendis.
Margrét Aðalsteinsdóttir annar hópstjóri Rauða krossins í Föt sem framlag hitti prjónahópinn á HSA og skoðaði framleiðslu á fyrstu teppunum. Þau fara í fatapakka sem sendir verða til Malaví.
Margrét er afskaplega ánægð með samstarfið sem kemur sér ákaflega vel fyrir virkni- og iðjuþjálfunarstarf á deildinni.
 |
| Sjálfboðaliðar í „Föt sem framlag“ Guðný Hólmfríður, Margrét Aðalsteinsdóttir hópstjóri, Guðrún Benediktsdóttir og Valgerður Valdimarsdóttir. |
 |
| Selma Klemensdóttir iðjuþjálfi með prjónakonum. |
 |
| Ingibjörg Aðalsteinsdóttir er virkniþjálfi og sér um verkefnið á deildinni ásamt iðjuþjálfun. |