|
Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands, skammstafað URKÍ, er landsssamband ungmennadeilda Rauða kross Íslands og ungmennastarfs innan Rauða kross deilda. Nánari upplýsingar um Ungmennahreyfingu Rauða krossins, markmið hennar og starfsemi má finna í starfsreglum URKÍ hér á vefnum.
Stjórn URKÍ
Stjórn Ungmennahreyfingar Rauða kross Íslands (URKÍ) er skipuð sex fulltrúum auk formanns, jafnframt eru kosnir tveir varastjórnarmenn. Formaður er kosinn sérstaklega til tveggja ára, en aðrir eru kosnir til eins árs í senn.
Stjórn kýs sér á fyrstu fundum stjórnar varaformann, gjaldkera og ritara. Formaður skal vera talsmaður stjórnarinnar og URKÍ í heild.
Stjórn URKÍ tilnefnir fulltrúa hreyfingarinnar á svæðisfundum og í svæðisráð, skv. 2. og 3. gr. starfsreglna fyrir svæðasamstarf.
Stjórnin fer með málefni URKÍ á milli landsfunda. Hlutverk stjórnar er að sjá um undirbúning og fylgja eftir samþykktum landsfunda og velja menn til umsjónar með þeim verkefnum sem URKÍ ræðst í á kjörtímabilinu..
Stjórn fundar að minnsta kosti einu sinni í mánuði og oftar ef þörf er á. Formaður boðar til stjórnarfunda með rafrænum eða skriflegum hætti með minnst einnar viku fyrirvara.
Fyrir landsfund skipar stjórn kjörnefnd sem vinnur eftir starfsreglum kjörnefndar URKÍ til að finna fulltrúa til að sita í stjórn og nefndum URKÍ.
Nánari upplýsingar um stjórn og starf URKÍ veitir formaður á netfangið formadur@urki.is eða landsskrifstofa Rauða kross Íslands í síma 570-4000. Netfang stjórnar URKÍ er urki@urki.is.
Hér má sjá merki URKÍ:
|
|