Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Mannúð og menning - nokkur sæti laus! 26.07.2010

Nokkur sæti eru laus á námskeiðið Mannúð og menningu í Kópavogsdeild Rauða krossins. Námskeiðið er fyrir börn á aldrinum 7-9 ára (fædd 2001-2003), og er haldið dagana 3.-6. ágúst kl. 9-16 í sjálfboðamiðstöð deildarinnar í Hamraborg 11, 2. hæð.

Skráning er til 30. júlí.

Á námskeiðunum „Mannúð og menning" er lögð áhersla á fræðslu og leiki í tengslum við hugsjónir Rauða krossins um mannúð og óhlutdrægni. Þátttakendur fræðast um Rauða kross starf, skyndihjálp, mismunandi menningarheima og umhverfið.

Skráning og nánari upplýsingar á kopavogur@redcross.is

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook