Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Úsbekistan: Rauði krossinn hjálpar fórnarlömbum átakanna 25.06.2010
Talið er að um 92 þúsund flóttamenn séu í Úsbekistan

Starfsmenn Rauða hálfmánans í Úsbekistan og Alþjóða Rauða krossins eru við störf á landamærum Úsbekistan og Kirgistan. Unnið er að viðbragðsáætlun til að mæta þörfum flóttamanna sem flestir eru konur og eldri borgarar en einnig þúsundir barna þeirra. Samkvæmt skráningu yfirvalda í Úsbekistan eru flóttamennirnir 92 þúsund.

Upphaf átakanna má rekja til spennu milli þjóðarbrota sem leiddi til ofbeldisverka á svæðum Osh og Jalalabat í Kirgistan þann 10. júní. Vegna átakanna flúði fjöldi íbúa yfir landamærin frá Kirgistan til Úsbekistan. Samkvæmt opinberum upplýsingum eru látnir um 200 og 19 þúsund slasaðir.

Tvær flugvélar Alþjóða Rauða krossins fóru á sunnudaginn til Úsbekistan með hjálpargögn fyrir flóttamannabúðir í Andijan, Namangan og Fergana. Starfsfólk og sjálfboðaliðar úsbekista Rauða hálfmánans vinna við dreifingu hjálpargagnanna. Fleiri hjálpargögn koma með flugi á næstu dögum.

Í þeim flóttamannabúðum sem Rauði krossinn hefur heimsótt eru enn nægar birgðir af mat, vatni og húsaskjóli. Þó hafa komið upp vandamál sem tengjast hreinlætismálum og einnig er hætta á því, ef ástandið helst óbreytt næstu vikur, að flóttamannabúðirnar yfirfyllist og birgðir dugi ekki.

Neyðarbeiðni Alþjóða Rauða krossins um 4,15 milljón svissneskra franka miðar af því að koma neyðaraðstoð til þeirra 24 þúsunda sem verst eru staddir næstu sex mánuði. Þetta fjármagn mun styðja við starfsemi Rauða hálfmánans í Úsbekistan. Eftir stöðumat í fyrstu átta flóttamannabúðunum er lögð áhersla á að útvega matvæli, vatn og hreinlætisvörur ásamt því að bæta svefn- og hreinlætisaðstæður. Einnig er þörf fyrir sálrænan stuðning.

Rauði kross Íslands hefur ákveðið að veita 30 þúsundum svissneskum frönkum (3,5 milljónum króna) til aðstoðarinnar við flóttamenn í Úsbekistan og sömu upphæð til hjálparstarfa innan Kirgistan.

Alþjóða Rauði krossinn hefur nú þegar úthlutað um 124.500 evrum (um 24 milljónum króna) úr neyðarsjóði sínum til styrktar kirgiska Rauða hálfmánanum og á upphæðin að veita 2.600 manns tafarlausa aðstoð.

Rauði hálfmáninn í Kirgistan mun veita þeim fjölskyldum, sem eru að reyna að komast yfir landamærin, aðstoð með mat og hjálpargögn t.a.m. teppi og hreinlætispakka. Einnig mun félagið setja upp tjöld á flutningsleiðum á landamærum Kirgisistan og Úsbekistan þar sem dreift verður mat og öðrumhjálpargögnum, en sinna einnig skyndihjálp og sálrænum stuðningi.

Þeir 300 flóttamenn sem flúðu frá hættusvæðum í Kirgistan til nágrannaríkisins Tatsekistan hafa hlotið stuðning frá Rauða hálfmánanum í Tatsekistan.
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook